Svo ég er skotin í eineygðum tónlistarmanni sem spilar blússlagara á útlenskum bar á sunnudagskvöldum. Sagði ykkur allt frá ókunna hæfileikamanninum í síðasta pistli og gerði gott betur en það, ég sýndi ykkur manninn fletta sig klæðum á sviði.
Hann er kallaður Sid og syngur
með stærsta kvartett í heimi; Frank Znort. Meðlimir hljómsveitarinnar eru 21 talsins og hafa
spilað saman í ein 15 ár, en þau troða upp við ómældan fögnuð viðstaddra hvern
einasta sunnudag og spila fyrir troðfullu húsi í hjarta listamannahverfisins Grünerløkka
sem lúrir í hjarta Oslóar, á litlum bar sem ber einfaldlega heitið Bla.
Í raun er ég svo ekki skotin í
stráknum sem slíkum, heldur líflegri heimspekinni sem þessir kæruleysislega
glaðlyndu jazzgeggjarar boða hvert einasta sunnudagseftirmiðdegi við árbakka Akerselva
árinnar sem rennur eftir hverfinu endilöngu og liggur alla leið til
sjávar.
Þar bar til dæmis fyrir augu mín
einn stærsta reður sem ég hef séð um ævina, sem maraði á miðri ánni eins og
tígurlegur svanur með frumlegan bát í eftirdragi meðan hæfileikafólkið sem
stóð rólyndislega fyrir aftan mig kynnti
listmuni sína á litlum borðum og básum.
![]() |
Stærsti reður sem ég hef séð um dagana, marandi letilega á miðri Akersalva ánni. |
Það var á Brenneriveien við
fallega barinn sem ber heitið Bla sem ég gerði mér grein fyrir því að Osló
hefur óteljandi ásjónur og að borgin sefur aldrei í raun, þó sunnudagarnir hafi
vissulega yfir sér stillu og ró sem hverfur eins og dögg fyrir sólu þegar
morgun rís að nýju hvern einasta mánudag.
Osló hefur óteljandi ásjónur og
iðar af fjölbreytileika; verðlagið er jafn misjafnt og fólkið sem byggir
borgina og það er ekki úr vegi að rata inn á ókeypis jazztónleika á
sunnudagseftirmiðdegi, njóta kaffibolla á sambærilegu verðlagi og þekkist í
henni gömlu Reykjavík, festa kaup á fallegri flík á kostakjörum og jafnvel
njóta kvöldverðar á gullfallegum veitingastað ... panta brot af því besta af
matseðlinum og það á eigin móðurmáli.
![]() |
Freistingar leynast á hverju strái í fallegu Osló á letiblöndnum sunnudögum; myndskot af útimarkaðinum. |
Og fallega Osló iðar af
listsköpun. Á letiblöndnu sunnudagseftirmiðdegi í líflegu Grünerløkka ber
allt aðra Osló fyrir augun en hinn almenni ferðamaður á að venjast. Eineygði
tónlistarmaðurinn sem blúsar alla sunnudaga er örlítið symbólískur fyrir það
eitt að hann virðist frjáls undan oki efnishyggjunnar þegar hann hefur upp
raust sína á sviði, rétt eins og fámáli og örlítið feimni félagi hans sem
hannar skartgripi sem myndu sóma sér vel í hverju einasta kaffiboði; hann selur
listilega gerða kaffibolla í örstærð sem ætlaðir eru sem eyrnalokkar.
Osló kann að vera ein af dýrari
borgum heims, en hún er sannarlega fjölbreytilegri en ætla mætti við fyrstu
sýn. Fegurðina er ekki síður að finna í afviknum hliðargötum og litlum
húsasundum, sem mörg hver búa yfir magnþrunginni fegurð og fela í raun í sér,
raunverulega sál borgarinnar sem aldrei sefur.
Hér fara nokkrar skemmtilegar tillögur að frumlegri afþreyingu sem
kostar bara fáeinar krónur í henni fallegu Grünerløkka og það á letiblöndnum
sunnudegi:
Frappe á Waynes
Coffee:
![]() |
Greinarhöfundur felldi þögult tár af gleði (græðgi) við fyrstu kynni af Mocca Frappe á Waynes Coffee |
Undursamlegasta freisting í formi
kaffibolla sem ég hef bragðað um ævina er Frappe með Toasted Marshmallows sem
fæst á Waynes Coffee. Kostar litlar 49 krónur (u.þ.b. 1.000 ísl kr) og smakkast
eins og ævintýri. Freisting sem erfitt er að standast, himnaríki sykurunnenda
og stranglega bannaður börnum innan átján ára, hvað þá þeim sem vilja halda í
línurnar. Sunnudagar eru þó undanskildir. Láttu einn eftir þér; fyrir þá sem
ekki vilja sykurpúðana er líka hægt að panta Creamy Caramel Frappe eða
einfaldlega Mocca Frappe. Ég felldi þögult tár af unaði í fyrsta sinn sem ég
smakkaði drauminn. Waynes Coffee er staðsett á Markveien 35 í
Grünerløkka og er opið til kl. 21.00 alla daga vikunnar. Taktu bollann með á röltið og
hafðu regnhlíf við höndina. Osló er rennblaut borg og regnhlífar eru
einstaklega töff. Smelltu HÉR til að skoða kaffiseðil Waynes
Coffee.
Dularfyllsta
tóbaksverslun í allri Osló:
![]() |
Höfum við grafið upp eina dularfyllstu tóbaksbúð í allri Osló? |
Svartasta freisting allra þeirra
sem enn dýrka tóbak. Þessi ofursmáa og sjarmerandi verslun selur ekki bara
tóbak af öllum gerðum; hér er að finna fótboltaáhugamenn sem afgreiða af eldmóð
og snilld, lífræn tóbaksblöð sem vandlega vafin inn í pappír mynda hágæða
vindla og munntóbak í öllum regnbogans litum fyrir einmitt þá sem enn eru háðir
nikótíni en þola illa reyk. HÉR má sjá vegvísun að svörtustu freistingum
allra sannra áhugamanna um tóbak.
Nighthawk Diner:
![]() |
Þessi guðdómlegi hamborgari kostar litlar 3.800 íslenskar krónur og bragðast eins og hnoðri af himnum. |
Hamborgarabúlla á
heimsmælikvarða; heimili þeirra vandlátu og einn eftirsóknarverðasti
„skyndibitastaður“ á fallegu Grünerløkka. Haltu þér fast; hamborgarinn kostar
litlar fjögur þúsund íslenskar krónur og biðröðin liggur langt út á götu á góðu
eftirmiðdegi. Ótrúlegar innréttingar í anda þriðja áratugarins, svaðalegur
amerískur blær og guðdómlega hallærislegur klæðnaður gengilbeina eru meðal þess
sem gera Nighthawk Diner að markverðu minnismerki. Staðurinn opnaði dyrnar um
miðbik árs 2010 og hefur skipað sér verðugan sess meðal eftirsóknarverðustu
veitingastaða í Osló.
Svo biðraðir höfða ekki til þín?
Hringdu og pantaðu borð. Pantanir eru teknar niður milli kl. 10 og 14 alla
virka daga ... sendu tölvupóst eða einfaldlega SMS. Var ég annars búin að
minnast á að einungis lífrænt nautakjöt er notað við hamborgaragerðina? Smelltu HÉR til að lesa matseðil Nighthawk Diner
Listræni útimarkaðurinn undir risavöxnu
kristalskrónunni:
![]() |
Magnaður boðskapur í verslunarglugga í fallegu Osló og sunnudagsmarkaðurinn. |
Brenneriveien hýsir ekki bara
fallega tónlistarmenn og freistandi veitingar, heldur undursamlegan útimarkað
þar sem listamenn af ólíkum uppruna renna saman í eitt á sunnudögum og breiða
út vængina. Markaðurinn sem blasir við þegar gengið er inn portið í átt að Blå bar
er algerlega magnaður. Þarna er fámála og fingrafima snillinginn að finna, þann
hinn sama og hannar fallegu kaffibollana og kökudiskanælurnar. Hér er hæfileikaríkt
handverksfólk að finna og jafnvel ilmandi vöfflur sem brosmildar konur
framreiða af alúð og snilld. Smelltu HÉR til að skoða staðsetninguna sjálfa á korti, en HÉR finnur þú frekari
upplýsingar um sunnudagsmarkaðinn við Blå.
Fallegi Blå og Frank
Znort Quartet:
![]() |
Það kostar ekki allt peninga í hinum stóra heimi; Frank Znort spilar fyrir fullu húsi alla sunnudaga. |
Lítill og skrýtinn, skemmtilegur
og litríkur. Mekka ófárra tónlistarmanna og paradís þeirra sem njóta lifandi
tónlistar. Hér treður eineygði tónlistarmaðurinn upp alla sunnudaga ásamt
félögum sínum, sem eru tuttugu og einn talsins og gæða staðinn lífi. Blå bar er upplifun sem enginn ætti í
raun að missa af og Brenneriveien númer níu er eitt af best geymdu leyndarmálum
Oslóar. Nældu þér í sæti ef þú finnur lausan stól, taktu með þér seðla því
barinn tekur ekki kort og blandaðu þér í hópinn. Smelltu HÉR til
að heimsækja vefsíðu Blå en HÉR til
að lesa meira um Frank Znort Quartet.
Klara Egilson er búsett í Osló og ritar af og til ferðagreinar um þau ævintýri sem verða á vegi hennar í borginni. Hún heldur líka úti litlum ferðavef sem ritaður er á ensku og ber nafnið Beauty is Plain; smellið HÉR